Heildarlausnir Í Tækni, Þjónustu og Sjálfvirkni

Við sameinum tækni, þjónustu og reynslu til að skapa einfaldar og áreiðanlegar lausnir.

Hvort sem þú þarft sjálfvirkni, viðhald eða ráðgjöf – við sjáum til þess að allt virki eins og það á að gera.

Þjónusta

Viðgerðir

Við hjá OutZone tökum að okkur fjölbreyttar viðgerðir á tækjum og búnaði – allt frá landbúnaðarvélum og rafbúnaði til tölvukerfa og netlausna. Við leggjum áherslu á áreiðanleika, fagmennsku og skjót viðbrögð. Hvort sem um er að ræða rafmagn, vélbúnað eða hugbúnað, þá finnum við lausn sem virkar og endist.

.

Sjálfvirkni í lanbúnaði

Við þróum og setjum upp sjálfvirknilausnir sem spara tíma, minnka vinnuálag og hámarka nýtingu búnaðar á bæjum. Með samþættingu tækja, skynjara og stýringarkerfa hjálpum við bændum að fylgjast með og stjórna búrekstrinum á einfaldan og öruggan hátt – hvort sem um er að ræða hitastýringu, vökvun, fóðrun eða öryggiskerfi.

.

Bottar fyrir fyrirtæki

Við hönnum sérsniðna gervigreindarbotta sem geta svarað spurningum viðskiptavina, tekið á móti bókunum, safnað upplýsingum eða veitt stuðning allan sólarhringinn. Bottarnir okkar eru tengdir við núverandi vefi og kerfi fyrirtækja og hjálpa til við að bæta þjónustu, spara tíma og draga úr álagi á starfsfólk.

.

Leiðsögn

Við bjóðum upp á leiðsögn fyrir ferðamenn og hópa um suðurland, hálendið og jökla Íslands. Leiðsögumenn okkar hafa áralanga reynslu, djúpa þekkingu á náttúru landsins og bakgrunn í björgunarsveitastarfi sem tryggir öryggi og fagmennsku á öllum ferðum.

.

Dróna þjónusta

Við veitum faglega drónaþjónustu fyrir bændur og fyrirtæki. Þjónustan nær yfir myndatökur, landmælingar, hitamyndun, eftirlit og leit í óbyggðum. Við notum háupplausnarbúnað með hitamyndavélum og GPS staðsetningu fyrir nákvæmar og öruggar niðurstöður.

.

Hudaþjálfun

Við bjóðum upp á þjálfun fyrir vinnu-, fjár- og heimilishunda með áherslu á traust, samvinnu og skýr samskipti. Þjálfunin byggir á reynslu og faglegri nálgun sem tekur mið af eðli hvers hunds og markmiðum eigandans.

.

Fjaraðstoð

Við getum greint og leyst mörg vandamál í gegnum fjarþjónustu – hvort sem um er að ræða tölvukerfi, netuppsetningar eða tæknibúnað. Með öruggum tengingum getum við aðstoðað án þess að þurfa að mæta á staðinn, sem sparar bæði tíma og kostnað.

.